Ársskýrsla DalaAuðs fyrir starfsárið 2025 er komin á vefinn, sjá hér hlekk á skýrsluna góðu:
dalaaudur_arsskyrsla-2025_utgafa.pdf
Við þökkum öllum þeim sem komið hafa að vinnunni með einum eða öðrum hætti, ekki síst verkefnastjóranum okkar dýrmæta, Lindu Guðmundsdóttur sem ásamt verkefnastjórn heldur utan um verkefnið allt af myndugskap.
Vitnum hér beint í niðurlag skýrslunnar og orð Lindu þar sem hún segir m.a.:
„Stórstjörnur DalaAuðs voru eins og síðustu ár íbúar sveitarfélagsins, sem létu til sín taka á öllum sviðum mannlífsins og atvinnulífsins. Það er oft sagt að í Dölunum hafi allir marga hatta og er það dagsatt. Hér vinnur fólk samhent að því að halda úti íþróttastarfi fyrir börn, starfrækja leikfélag, stika gönguleiðir, halda úti líkamsrækt, bjóða upp á vörur og þjónustu í héraði og margt fleira. Haldin voru námskeið, viðburðir og erindi um hin ýmsu málefni og af mismunandi toga og félagslífið dafnaði vel á árinu. Einstaklega gott sumar skilaði sér í frábærum afurðum, sem hægt var að kaupa beint af býlum. Beint frá býli dagurinn var reyndar haldinn með pompi og prakt og einnig alþjóðlegi ostadagurinn í Dölunum, nánar tiltekið á Erpsstöðum og framleiðendur úr Dölum voru einnig duglegir að mæta með sínar vörur á markaði víðs vegar um land. Slíkar kynningar eru mikilvægar fyrir matvælahéraðið Dali.
Sem verkefnisstjóri DalaAuðs lenti ég oft á tali við fólk sem býr annars staðar, sérstaklega fólk á Vesturlandi innan Vesturlands, sem hafði orð á því að það „væri allt að gerast“ í Dölunum. Mörgum fannst Dalirnir meira áberandi en áður í umræðunni, frumkvæðisverkefni sem þar væru í gangi virtust ganga vel og væru sýnileg í fjölmiðlum og mikil uppbygging virtist vera á svæðinu, séð utan frá. Það er mikil hvatning að heyra þetta frá nágrönnum okkar og finna að þeir samgleðjast Dalamönnum.Dalamenn mega líka vera stoltir af því sem þeir eru og öllum þeim verkefnum sem hrundið hefur verið af stað á síðustu árum.“
Orð að sönnu hjá Lindu – vel gert íbúar Dalabyggðar !
