Bólusetning gegn árlegri inflúensu

DalabyggðFréttir

Inflúensubólusetningar fyrir áhættuhópa eru að hefjast á Heilsugæslustöðinni í Búðardal og á Reykhólum.
Tímapantanir eru í síma 432 1450

Í forgangshópi eru:

  • einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Börn fædd 2020 eða síðar sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Barnshafandi.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu sbr. frétt í okt. 2023

Starfsfólk HVE Búðardal / Reykhólum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei