Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð í raðhús að Bakkahvamm 15a. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð um 84m².
Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.
Umsókn um leigu
Umsókn skal senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is , með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 07. Júní 2025
Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.