Breyttur opnunartími Heilsugæslunnar á föstudögum tekur gildi 20. júní n.k.
Frá og með föstudeginum 20. júní n.k. verða opnunartímar Heilsugæslustöðvarinnar í Búðardal eftirfarandi:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 – 15:00
- Föstudaga kl. 9:00 – 12:00
Stytting opnunartíma á föstudögum hefur nú þegar tekið gildi á öllum öðrum stöðvum á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að Akranesi undanskyldu. Þetta er gert í kjölfar þess að 36 tíma vinnuvika er komin til að vera til framtíðar.
Vaktnúmer utan opnunartíma er 1700 en hægt er að hringja í 1700 allan sólarhringinn og að auki er netspjall opið frá 8:00 til 22:00 alla daga vikunnar.
Neyðarnúmer er 112 allan sólarhringinn. Það númer skal nota ef um slys eða bráð veikindi er að ræða.
– Starfsfólk HVE-Búðardal