Vegna nauðsynlegra úrbóta og viðgerða í Dalabúð hefur verið ákveðið að loka fyrir útleigu á félagsheimilinu á meðan þeim stendur.
Framkvæmdir standa yfir næstu mánuði og verður tilkynnt um það þegar félagsheimilið er tilbúið til útleigu á ný.
Félög sem hafa samning um aðstöðu í Dalabúð munu áfram hafa aðgengi að sinni aðstöðu en við biðjum þau um að taka tillit til framkvæmda sem eru í gangi hverju sinni. Forsvarsmenn félaganna eiga nú að hafa fengið tölvupóst þess efnis.
Vilji Dalabyggðar er til að búa Dalabúð vel úr garði svo félagsheimilið sé okkur til sóma þegar fólk kemur þar saman á viðburðum.