Dalabyggð greiðir þátttöku á Mannamót 2026

DalabyggðFréttir

Í tengslum við markaðssetningu ferðaþjónustu í Dalabyggð vill sveitarfélagið bjóða ferðaþjónum sem ætla sér að taka þátt á Mannamóti 2026 að greiða þátttökugjaldið fyrir þá.

Þann 15. janúar 2026 er komið að hinni árlegu ferðakaupstefnu Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem fram fer í Kórnum í Kópavogi frá klukkan 12 til 17.

Mannamót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru víðs vegar um landið. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda og efla tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá.

Upplýsingar um aðstöðu og uppsetningar bása má finna hér: Upplýsingar fyrir sýnendur

Fyrirtæki sem ekki eru aðilar að markaðsstofu geta haft samband við sína landshlutaskrifstofu sem á Vesturlandi er Markaðsstofa Vesturlands. Þátttökugjald er 34.900 kr. + vsk.

Dalabyggð mun styrkja sína ferðaþjóna sem sækja Mannamót með því að greiða þátttökugjaldið fyrir þá!
ATH – ekki er nóg að skrá sig, viðkomandi verður að mæta og taka þátt á Mannamóti. Dalabyggð áskilur sér rétt til að innheimta þátttökugjaldið ef viðkomandi mætir ekki á sýninguna þann 16. janúar n.k.
Er þetta gert í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands þannig að reikningur fyrir þátttöku þeirra ferðaþjóna sem starfa í sveitarfélaginu, skrá sig á Mannamót 2026 og mæta, fer til Dalabyggðar.

Skráning sýnenda og gesta er þegar hafin og um að gera að skrá sig sem fyrst: SKRÁ MIG 

Skráningu sýnenda lýkur þann 18. desember 2025

Ef þið þarfnist nánari upplýsinga s.s. varðandi uppröðun, skipulag o.s.frv. bendum við á okkar góða fólk hjá Markaðsstofu Vesturlands.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei