Dalakonur kveða er ný sýning Héraðsskjalasafns Dalasýslu og Byggðasafns Dalamanna í anddyri stjórnsýsluhússins í Búðardal. Þar er sýnishorn af kveðskap kvenna sem hafa átt heima í Dölunum.
Á Héraðsbókasafni Dalasýslu eru ljóðabækur kvenna áberandi og hvatt til ljóðalesturs.
Einar Kristjánsson fyrsti héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Dalasýslu átti þó nokkurt vísnasafn og er það varðveitt á Héraðsskjalasafni Dalasýslu. Síðan hefur bæst við kveðskapur á safnið og í ár hafa verið tvær afhendingar eingöngu með kveðskap.
Sýningin er ágætis tilefni til að minna á að Héraðsskjalasafn Dalasýslu tekur við hvers konar kveðskap sem og öðrum einkaskjölum sem tengjast Dölunum og nágrenni.
Kvæðið á myndinni er elsti og eini kveðskapurinn á sýningunni eftir ónafngreinda konu. Það er að finna í Króksfjarðarbók Sturlungu og sögð ort af „kerlingu einni í Tungu“.
