Dalamenn duglegir að nýta þjónustu í héraði

DalabyggðFréttir

Byggðastofnun hefur birt nýja skýrslu um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins. Skýrslan byggir á þjónustukönnun sem framkvæmd var árið 2024 meðal tæplega sjö þúsund íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og gefur ítarlega mynd af því hvar íbúarnir sækja vinnu og ýmsa þjónustu.

Margt áhugavert er að finna í skýrslunni, ekki síst þegar Dalirnir eru skoðaðir. Um 62% þjónustusóknar íbúa Búðardals og 51% þjónustusóknar íbúa dreifbýlisins eru innan þjónustusvæðis Búðardals. Íbúar dreifbýlisins í Dalabyggð sækja 31% þjónustunnar til Borgarness en íbúar í Búðardal 15%. Um 10% þjónustusóknar íbúa Dalabyggðar er til höfuðborgarsvæðisins.

Íbúar í þéttbýli

Íbúar í Búðardal sækja meirihluta þjónustu innanbæjar en Borgarnes og höfuðborgarsvæðið eru einnig mikilvægir þjónustustaðir fyrir íbúana. Önnur dagvöruverslun er algengasta þjónustan en þó er einnig algengt að íbúar versli í lágvöruverðsverslun í Borgarnesi. Meirihluti sundferða er innan þjónustusvæðis Búðardals en um fimmtungur sundferða íbúanna eru þó í Borgarnesi. Lyfjaverslun, líkamsrækt og vínbúð eru einnig algeng þjónusta fyrir íbúa í Búðardal og er að nær öllu leyti sótt innanbæjar. Heimsóknir á heilsugæslu eða til heimilislæknis eru að nær öllu leyti innanbæjar í Búðardal en föt og skór eru oftast versluð á höfuðborgarsvæðinu. Hársnyrting dreifist aðallega milli Búðardals og höfuðborgarsvæðisins. Bílaverkstæði, sérfræðiráðgjöf (sálfræðingar, félagsráðgjafar, fjölskylduráðgjafar, talmeinafræðingar) og póstbox eru að mestu sótt innanbæjar. Sendingar frá Dropp eru ýmist sóttar í Borgarnesi eða í Búðardal, flestar tannlækna- og sérfræðilæknaheimsóknir eru á höfuðborgarsvæðinu en algengast er að Búðdælingar fari til Borgarness í sjúkraþjálfun.

Íbúar í dreifbýli

Um helmingur þjónustusóknar íbúa í dreifbýli Dalabyggðar er til Búðardals enda er svæðið innan þess þjónustusvæðis. Einnig er mikil þjónustusókn til Borgarness. Lágvöruverðsverslun er algengasta þjónustan og er oftast verslað í Borgarnesi en einnig er algengt að verslað sé í dagvöruversluninni í Búðardal. Lyfjaverslun, pósthús, líkamsrækt og sundferðir eru þjónustuþættir sem íbúar í dreifbýli Dalabyggðar nýta oft og er sú þjónusta að jafnaði sóttir innan þjónustusvæðis Búðardals. Heimsóknir á heilsugæslu eða til heimilislæknis eru að öllu leyti í Búðardal en sjúkraþjálfun er nær eingöngu sótt til Borgarness. Föt og skór eru oftast keypt á höfuðborgarsvæðinu en oft rafrænt. Oftast er farið á bílaverkstæði í Búðardal en stundum yfir á Borðeyri sem er á þjónustusvæði Hvammstanga. Íbúar í dreifbýli Dalabyggðar fara oftast í hársnyrtingu í Búðardal en stundum á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar. Heimsóknir til sérfræðilækna eru oftast á höfuðborgarsvæðinu en tannlæknaheimsóknir eru ýmist á höfuðborgarsvæðinu eða í Búðardal. Algengast er að íbúarnir nýti sér rafræna sérfræðiráðgjöf (sálfræðingar, félagsráðgjafar, fjölskylduráðgjafar, talmeinafræðingar). Póstbox er nær alltaf notað í Búðardal en Dropp er oftar sótt í Borgarnes heldur en Búðardal.

Verslun og þjónusta

Nokkrir þættir í skýrslunni eru staðfestir sem kannski koma ekki á óvart, svo sem að stærstu bæirnir gegna mikilvægu hlutverki sem miðstöðvar verslunar og sérhæfðrar þjónustu fyrir nálæg svæði. Þá er dagvöruverslun langumfangsmesti þjónustuþátturinn í daglegu lífi íbúa. Lágvöruverðsverslun og önnur dagvöruverslun standa saman fyrir um 42% allrar þjónustusóknar.

Á Vesturlandi einkennist þjónustusókn af nokkrum tiltölulega sterkum þjónustukjörnum sem þjóna nærliggjandi svæðum. Að teknu tilliti til íbúafjölda hvers búsetusvæðis sækja Vestlendingar um 85% allrar þjónustu innan síns þjónustusvæðis.

Önnur skýrsla væntanleg

Skýrslan um vinnu- og þjónustusókn er sú fyrri af tveimur um þjónustukönnun Byggðastofnunar. Síðari skýrslan, sem fjallar um viðhorf íbúa til þjónustu og væntingar til breytinga á þjónustuframboði, verður birt síðar á þessu ári.

Hægt er að lesa meira um niðurstöðurnar á vef Byggðastofnunar sem og að skoða töflur og nánari niðurstöður í skýrslunni hér ofar í fréttinni.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei