Héraðsbókasafn Dalasýslu býður gestum og gangandi að grípa með sér eintak af tímariti um garðyrkju að kostnaðarlausu. Kassinn er staðsettur fyrir framan bókasafnið svo hægt er að nálgast eintök utan opnunartíma.
Einnig minnum við á að frækassinn, Dalafræ, skipt og skundað, er kominn á sinn stað.
Hugmyndin gengur út á að fólk getur komið með afgangsfræ og/eða umframmagn af fræjum, skilið eftir í þessum kassa og aðrir notið góðs af og skipt út ef fræbankinn geymir eitthvað sem viðkomandi á ekki. Ekki er skilyrði að eiga fræ til að skipta.
Opnunartímar bókasafns:
Þriðjudagar kl. 12:30-17:30
Fimmtudagar kl. 12:30-17:30
Bókasafnið er lokað beri almenna frídaga upp á opnunardaga.