Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2026-2029 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn og samþykkt einróma fimmtudaginn 11. desember 2025.
Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2026 er jákvæð um 7,5 milljónir króna. Nýjasta útkomuspá fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á ríflega 173 milljónir króna á árinu þannig að áfram er haldið á sömu braut með sjálfbærni reksturs sveitarfélagsins að leiðarljósi þrátt fyrir metnaðarfulla uppbyggingu og rekstri íþróttamannvirkja í Búðardal.
Skuldaviðmið sveitarfélagsins, þ.e. heildarskuldir og skuldbindingar A- og B- hlutans sem hlutfall af reglulegum tekjum hefur aukist samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins samhliða framkvæmdum við íþróttamannvirki. Áætlað skuldaviðmið í árslok 2026 mun nema 116,7% en hámark samkvæmt reglum um fjármál sveitarfélaga er 150% af reglulegum tekjum þess. Fjárhagsáætlun Dalabyggðar gerir ráð fyrir því að skuldaviðmiðið fari lækkandi og muni verða um 97,1 % í lok árs 2029. Veltufjárhlutfall samstæðunnar er sterkt, en áætlað er að það verði 1,24 í árslok 2026. Áætlað er að það fari hækkandi árin 2027 til 2029 og nemi 1,50 í árslok 2029.
Miðað er við óbreytt álagningarhlutfall útsvars og fasteignaskatta og að hækkun gjaldskráa verði í flestum tilfellum 3,9%.
Dalabyggð réðst á árinu 2024 í stærstu einstöku framkvæmd í uppbyggingu mannvirkja sem sveitarfélagið hefur tekist á við í 30 ára sögu þess. Þann 12. júní 2024 var skrifað undir samning um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Búðardal og ungir íþróttamenn í Dölum tóku við sama tilefni fyrstu skóflustungur að mannvirkinu. Þessi framkvæmd litar rekstur og fjárfestingagetu Dalabyggðar næstu ár og því þarf að vanda mjög til verka í öllum daglegum rekstri og við ákvarðanatöku hvað framkvæmdir og fjárfestingar varðar. Lok framkvæmda eru áætluð í febrúar 2026 og hefst rekstur mannvirkisins í kjölfar þess og sést þess glöggt merki í fjárhagsáætlun 2026.
Áfram verður unnið á árinu 2026 að undirbúningi á uppbyggingu atvinnuhúsnæðis sem stuðningur fékkst til undirbúnings á í gegnum C1 sjóð Byggðastofnunar. Verulega ánægjulegt er að Byggðastofnun ætlar að standa með Dalabyggð í þessu verkefni sbr. viðauka við viljayfirlýsingu sem kynnt var á fundi sveitarstjórnar 11. desember. Einnig verður haldið áfram að hamra járnið varðandi uppbyggingu húsnæðis í Búðardal fyrir viðbragðsaðila svo eitthvað sé nefnt af því sem í pípunum er til styrkingar innviða í Dölunum.
Sveitarstjórn Dalabyggðar ákvað að viðhalda ákvörðun sem tók gildi í ársbyrjun 2023 um að fella niður vistunargjald í leikskóla hjá elsta árgangi í leikskóla hverju sinni, svokölluðum skólahóp, gjaldfrjálst skólamötuneyti í grunnskóladeild Auðarskóla verður áfram líkt og frá hausti 2024 einnig verður boðið upp á frí afnot af líkamsræktaraðstöðu fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, fyrst í stað í áframhaldandi samstarfi við Ungmennafélagið Ólaf Pá líkt og verið hefur frá ársbyrjun 2024 og svo í íþróttamannvirkjum Dalabyggðar eftir að þau komast í gagnið. Árskort á Héraðsbókasafn Dalasýslu verður áfram gjaldfrjálst á nýju ári og haldið er inni menningarmálaverkefnasjóði sem styður við menningarverkefni í heimabyggð og rétt að vekja athygli á að framlag til hans var hækkað við seinni umræðu um fjárhagsáætlun í 1,5 m.kr. Þá hefur Dalabyggð verið að endurnýja ýmsa samstarfssamninga s.s. við Leikklúbb Laxdæla, Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN), Félag eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi og Skátafélagið Stíganda þar sem stutt er við félagsstarf og líflegt mannlíf í sveitarfélaginu. Þessar ráðstafanir m.a. sýna einbeittan vilja sveitarstjórnar Dalabyggðar til að skapa sem bestar búsetuaðstæður fyrir íbúa á öllum aldri.
Markmið sveitarstjórnar Dalabyggðar er sem fyrr að bæta lífsgæði í sveitarfélaginu og að íbúum fjölgi á næstu árum samhliða því að sjálfbær rekstur sveitarsjóðs haldi áfram. Það eru næg verkefnin í Dalabyggð og tækifæri á hverju strái ef svo má segja og því mikilvægt að fá fleiri hendur til starfa og þátttöku í því blómlega og kröftuga samfélagi sem í Dalabyggð er.
f.h. sveitarstjórnar Dalabyggðar,
Björn Bjarki Þorsteinsson
sveitarstjóri
