Gott að eldast – ný nálgun á þjónustu við eldra fólk – fréttatilkynning

SveitarstjóriFréttir

Íslenskt samfélag stendur á tímamótum. Þjóðin er að eldast og eldra fólk er almennt virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Í því felst ekki aðeins áskorun heldur einnig mikil tækifæri. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þessar breytingar.

Undir heitinu Gott að eldast er nú hafin ný vegferð þar sem stjórnvöld taka utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti. Meginhugsunin er skýr: eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði.

Aðgerðir verkefnisins beinast að því að finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk. Sérstök áhersla er lögð á að samhæfa þjónustu ríkis og sveitarfélaga, efla heilbrigða öldrun með heilsueflingu, tryggja sveigjanlega þjónustu og bæta aðgang að ráðgjöf og upplýsingum fyrir eldra fólk. Markmiðið er að skapa þjónustu sem styður við virkt og heilsuhraust eldra fólk og gerir því kleift að taka þátt í samfélaginu sem allra lengst.

Sem lið í verkefninu hefur Dalabyggð í samstarfi við HVE og SSV stigið mikilvægt skref með stofnun svokallaðs Móma-teymis (móttöku- og matsteymis). Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun.

Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá Dalabyggð, Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni. Með því er stigið skref í átt að samþættri og samfelldri þjónustu við eldra fólk.

Jóna Björg verkefnastjóri fjölskyldumála í Dalabyggð lét hafa eftir sér eftirfarandi í tengslum við þetta tilefni:

Stofnun Móma teymisins í Dalabyggð færir okkur nær því markmiði sem unnið er að varðandi samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í sveitarfélaginu. Með þverfaglegu teymi er verið að tryggja að veitt sé rétt þjónusta á réttum tíma og útfrá þörfum hvers og eins.

Og Jóhanna F. Jóhannesdóttir, forstjóri HVE sagði við sama tilefni;

Samvinna þjónustuaðila í Dalabyggð er lykillinn að farsælli þróun þjónustu fyrir eldra fólk. „Með því að samþætta þjónustuna og byggja hana á samræmdu mati á þjónustuþörf getum við tryggt að einstaklingar fái heildstæða og skilvirka þjónustu.“

Á mynd hér með fréttatilkynninguni eru eftirfarandi: Sigríður Jónsdóttir, verkstjóri heimaþjónustu hjá Dalabyggð, Jóna Björg Guðmundsdóttir. verkefnastjóri fjölskyldumála hjá Dalabyggð, Heiður Haraldsdóttir, iðjuþjálfi hjá SSV, Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri hjá SSV og Hulda Gestsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á HVE.

Á myndina vantar þær Þórunni B. Einarsdóttur yfirhjúkrunarfræðing hjá HVE í Dalabyggð og Kristínu Guðbjörgu Arnardóttur hjúkrunarstjóra Silfurtúns sem koma munu að verkefninu f.h. sinna stofnana.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei