Fulltrúar kvenfélagsins Þorgerðar Egilsdóttur í Dölum komu færandi hendi fimmtudaginn 18.desember sl. og afhentu Ísak Sigfússyni lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar höfðinglegan styrk frá félaginu til kaupa á búnaði í Íþróttamannvirkin í Búðardal.
Það er ómetanlegt að finna þann stuðning sem uppbygging íþróttaaðstöðunnar nýtur í samfélaginu í Dölum eins og hér raungerist með stuðningi og fjárstyrk eins og hér um ræðir.
Hafið kæra þökk félagskonur í kvenfélaginu Þorgerði Egilsdóttir !
Á mynd hér með má sjá þær Berþóru Jónsdóttur og Jónínu Kristínu Guðmundsdóttur frá kvenfélaginu með Ísaki Sigfússyni inn á nýja parketinu okkar sem nú er búið að merkja upp að mestu.
