Höfðinglegur styrkur frá RK deild í Dölum og Reykhólahreppi

SveitarstjóriFréttir

Fulltrúar Rauða kross deildarinnar í Dölum og Reykhólahreppi komu færandi hendi fimmtudaginn 12. mars og afhentu Bjarka Þorsteinssyni sveitarstjóra og Ísak Sigfússyni lýðheilsufulltrúa höfðinglegan styrk frá félaginu til kaupa á björgunar og/eða skyndihjálparbúnaði í Íþróttamiðstöðina í Búðardal.

Það er ómetanlegt að finna þann stuðning sem uppbygging Íþróttamiðstöðvarinnar nýtur í samfélaginu í Dölum eins og hér raungerist með stuðningi og fjárstyrk eins og hér um ræðir.

Hafið kæra þökk félagar í Rauða kross deildinni !

Á mynd hér með má sjá þau Sigurð Ólafsson formann og Sigurdísi E.L. Sigursteinsdóttur gjaldkera Rauða kross deildarinnar með þeim Bjarka og Ísaki.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei