Dalabyggð hefur hafið vinnu við uppgjör vegna ársins 2025.
Þar sem frágangur bókhalds þarf að vera klár í byrjun febrúar köllum við nú eftir öllum þeim reikningum sem eiga eftir að koma í hús vegna 2025.
Innskráningu reikninga fyrir árið 2025 verður lokað miðvikudaginn 14. janúar n.k. og því þurfa allir reikningar að berast fyrir þann dag.
Einnig minnum við á að allir reikningar sem eru sendir á netfang eiga að berast á netfangið dalir@dalir.is
– Skrifstofa Dalabyggðar
