Laus störf: Kennarar í Auðarskóla skólaárið 2025-2026

DalabyggðFréttir

Auðarskóli auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi lausar stöður fyrir skólaárið 2025-2026:

  • Umsjónarkennari á miðstigi
  • Umsjónarkennari á elsta stigi
  • Leikskólakennarar
  • Tónlistarkennari
  • Faggreinakennarar: Myndmennt, hönnun og smíði, tónmenntakennari

Auðarskóli leitar að metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2025.

Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli og er staðsettur í Búðardal sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Í grunnskólanum eru um 70 nemendur í 1.-10. bekk grunnskólans og um 26 börn í leikskólanum. Tæplega helmingur nemenda grunnskólans stundar tónlistarnám. Einkunnarorð skólans eru Ábyrgð-Ánægja-Árangur.

Menntastefna Dalabyggðar er höfð að leiðarljósi í starfi skólans og er útgangspunkturinn að stuðla að framsækni og vellíðan barna og ungmenna og um leið alls skólasamfélagsins. Lögð er rík áhersla á að í Dalabyggð sé eftirsóknarvert og fjölskylduvænt samfélag og öflugt menntastarf er veigamikill þáttur þess. Forgangsmál er að byggja upp gott og heilbrigt starfs- og námsumhverfi þar sem komið er til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda í skólasamfélagi sem byggist á lýðræðislegri þátttöku allra.

Í Dölunum gefast mörg tækifæri til útivistar og hreyfingar og í Búðardal er vel búin líkamsræktarstöð. Íþróttahús og sundlaug eru í byggingu sem staðsett eru við grunnskólann og verða tekin í gagnið í feb/mars 2026.

Menntunar- og hæfniskröfur leik, grunn og tónlistarkennara

  • Leyfisbréf kennara (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
  • Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Metnaður til að þróa gæða skólastarf
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Stundvísi, áreiðanleiki og reglusemi

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum.

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Umsókn skal einnig fylgja  kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2025.

Nánari upplýsingar veitir:

Herdís Erna Gunnarsdóttir, skólastjóri, netfang: herdis@audarskoli.is,  sími: 4304757.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei