Kosningar 2026 – tækifæri til að hafa áhrif

SveitarstjóriFréttir

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sett af stað átak sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi og hvetja fólk til þátttöku. Sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir okkur mestu máli í daglegu lífi.
Eftirfarandi er texti af heimsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem við hvetjum íbúa Dalabyggðar sem og aðra til að kynna sér um leið og við hvetjum áhugasama aðila til þátttöku með einum eða öðrum hætti í þágu samfélagsins:

„Sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir okkur mestu máli í daglegu lífi. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki þegar kemur að hinu daglega lífi íbúa og sjá meðal annars um leik- og grunnskóla, samgöngumál, íþrótta- og æskulýðsmál, samgöngur, húsnæðismál, skipulag hverfa og ýmsa frístundaþjónustu – allt hlutir sem hafa bein áhrif á lífsgæði fólks, þar með talið ungs fólks og innflytjenda. Þegar við kjósum, styrkjum við rödd okkar í ákvarðanatöku og hjálpum sveitarfélögum að taka ákvarðanir sem endurspegla raunverulegar þarfir og væntingar íbúa þeirra.

Það að nýta kosningaréttinn sinn er líka sterk leið til að taka þátt í lýðræði og móta framtíð samfélagsins. Þótt það líti stundum út fyrir að atkvæði eins einstaklings skipti litlu máli, þá skiptir fjöldinn máli – og þegar við mætum á kjörstað eykst vægi málefna sem við viljum sjá breytast. Með góðri þátttöku tryggjum við að sveitarfélögin byggi á breiðri og fjölbreyttri rödd íbúa á öllum aldri. Þess vegna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga fólk til að nýta rétt sinn og verða virkir þátttakendur í mótun samfélagsins sem það býr í. „

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei