Á laugardaginn fór fram formleg vígsla á nýrri íþróttamiðstöð í Búðardal við hátíðlega og táknræna athöfn. Fjölmargir íbúar og aðrir gestir mættu til að fagna þessum mikilvæga áfanga fyrir samfélagið og var dagurinn einkar góður.
Dagskráin hófst með nokkrum stuttum ávörpum þar sem farið var yfir aðdraganda framkvæmdanna og mikilvægi mannvirkisins fyrir samfélagið í Dölum. Að því loknu var boðið upp á afbragðstertu og gestum bauðst að skoða aðstöðuna og kynna sér þá fjölbreyttu möguleika sem mannvirkið býður upp á. Börn og ungmenni létu ekki sitt eftir liggja og prófuðu aðstöðuna af miklum krafti.
Við viljum þakka öllum þeim sem komu að verkefninu með einum eða öðrum hætti, sem og þeim fjölmörgu sem mættu og gerðu daginn eftirminnilegan.
Um leið og við fögnum nýju og glæsilegu mannvirki viljum við minna á mikilvægi góðrar umgengni. Mannvirkið er sameiginleg eign okkar allra og því skiptir máli að:
- Ganga vel um húsnæði og búnað
- Nota aðstöðuna eingöngu í þeim tilgangi sem hún er ætluð
- Virða opnunartíma og fyrirmæli starfsfólks
- Minnum á að börn eru á ábyrgð foreldra og forráðamanna í opinberum rýmum
Með samstilltu átaki getum við tryggt að aðstaðan nýtist sem best um ókomin ár og verði áfram stolt samfélagsins í Dölum.
Opnunartími íþróttamiðstöðvar er eftirfarandi:
Mánudaga – föstudaga: 07:00-21:00
Laugardaga og sunnudaga: 10:00-16:00
Við hlökkum til að sjá ykkur nýta mannvirkið og taka þátt í öflugu íþrótta- og tómstundastarfi á komandi misserum.
