Óskað eftir framboðum í ungmennaráð

DalabyggðFréttir

Fræðslunefnd Dalabyggðar óskar eftir framboðum í ungmennaráð.

Hlutverk ungmennaráðs er m.a.:

  • Að veita sveitarstjórn ráðgjöf um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu.
  • Að gæta hagsmuna ungs fólks, koma skoðunum þeirra og tillögum til skila.
  • Að veita ungu fólki fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum tilgangi.
  • Að efla tengsl ungmenna í sveitarfélaginu og auka tengsl þeirra við stjórnkerfi sveitarfélagsins.

Stjórn ungmennaráðs skipa 4 fulltrúar; formaður, varamformaður, ritari og varamaður.

Ungmennaráð er skipað til tveggja ára í senn og er skipað í helming sæta ár hvert. Því er nú skipað í tvö sæti.

Öll sem eiga lögheimili í Dalabyggð, eru á aldrinum 14 – 20 ára og hafa áhuga á að taka þátt í starfi ráðsins eru hvött til að skila inn framboðum til Dalabyggðar á netfangið dalir@dalir.is fyrir 10.09.2025. Fram þarf að koma kynning á ykkur, ásamt ástæðu þess að þið viljið starfa í ráðinu.

– Verkefnastjóri fjölskyldumála

Myndin er tekin 11. júní 2024 á 30 ára afmæli Dalabyggðar þegar haldinn var sameiginlegur fundur sveitarstjórnar og ungmennaráðs.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei