Norðurljós í Tjarnarlundi

DalabyggðFréttir

Kvennakórinn Norðurljós frá Hólmavík heldur tónleika í Tjarnarlundi föstudaginn 16. apríl. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Athugið að það er enginn posi á staðnum. Á dagskrá eru ýmis létt lög. Stjórnandi kórsins er Sigríður Óladóttir og undirleikari er Viðar Guðmundsson. Allir hjartanlega velkomnir og eru Dalamenn hvattir til að láta ekki þessar hressu nágrannakonur framhjá sér fara.

Árnesingakórinn og Nikkólína í Dalabúð

DalabyggðFréttir

Síðasta vetrardag heldur Árnesingakórinn tónleika í Dalabúð og að þeim loknum verður harmonikkuball með Nikkólínu. Stjórnandi kórsins er Gunnar Ben og um undirleik sér Bjarni Jónatansson. Í tilefni af 90 ára fæðingarafmælis Sigfúsar Halldórssonar verða lög hans sungin. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og aðgangseyrir er 1.500 kr Að tónleiknum loknum verður harmonikkuball með Nikkólínu. Ballið hefst kl. 22:30 og er …

Straumlaust í Búðardal

DalabyggðFréttir

Rafmagnslaust verður í Búðardal aðfaranótt fimmtudags 15. apríl frá kl. 00:30 til 03:30 vegna vinnu í Rafstöð við Miðbraut. Um er að ræða eftirtaldar götur: Miðbraut, Borgarbraut, Dalbraut, Gunnarsbraut og Vesturbraut. Hafið ekki viðkvæm raftæki í notkun þegar rafmagnið fer af og munið að endurstilla öll tímastillt raftæki sem kunna að hafa breytt sér. Rarik biðst velvirðingar á þeirri röskun …

Opið í Leifsbúð

DalabyggðFréttir

Nú er opið í Leifsbúð og hægt að fá súpu og rétt dagsins. Opnunartímar Mánudagur til fimmtudags er opið 11.30 – 20.00Föstudagur opið 12.30 til 20.30 Súpa dagsins á kr. 700 Réttur dagsins á kr. 1.300 Kaffi og meðlæti allan daginn.Kveðja, Freyja.

Laus störf í heimaþjónustu

DalabyggðFréttir

Starfsfólk óskast í sumarafleysingar og einnig í 6 klst. aðra hvora viku. Starfsmaður óskast í heimaþjónustu í Dalabyggð, um er að ræða 6 klst. aðra hvora viku á heimili út í sveit. Einnig óskast starfsfólk í sumarafleysingar í heimaþjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Gróa Dal á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum milli kl. 13:00 – 17:00 í síma 892-2332. Umsóknarfrestur er …

Laus störf í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Störf tveggja flokksstjóra unglingavinnu Dalabyggðar eru laus til umsóknar. Um er að ræða tímabilið 1. júní til 6. ágúst. Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf og æskilegt að þeir hafi reynslu af störfum með börnum og unglingum. Umsóknum ber að skila á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal, fyrir 20. apríl nk. Allar nánari upplýsingar um störfin veitir sveitarstjóri í síma …

Tónleikar með KK

DalabyggðFréttir

KK verður með tónleika í Leifsbúð í kvöld, klukkan 21:00. Aðgangseyrir 2.000 kr.

Passíusálmar í Hjarðarholtskirkju

DalabyggðFréttir

Á föstudaginn langa voru Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni í sjöunda sinn í Hjarðarholtskirkju. Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson sáu um lesturinn. Lesturinn hófst kl. 13:30 og tók rúmar 4 klst. Boðið var upp á kaffi og með því í þjónustuhúsinu. Lesturinn var góður og þess má …

Leifsbúð opnunartímar yfir páska

DalabyggðFréttir

Opið verður í Leifsbúð um páskana. Boðið verður upp á súpu dagsins og létta rétti. Einnig hægt að fá kaffi og kaffiveitingar. Miðvikudagur 31. mars 11:30-01:00 Fimmtudagur 1. apríl 11:30-24:00 Föstudagur 2. apríllokað Laugardagur 3. apríl lokað Sunnudagur 4. apríl lokað Mánudagur 5. apríl 11:30-21:30 Verið hjartanlega velkomin Freyja Ólafsdóttir Leifsbúð

Menningar- og fræðsluferð FSD

DalabyggðFréttir

Laugardaginn 27. mars verður menningar- og fræðsluferð Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu um Strandir og Hrútafjörð. Áætlað er að skoða fjóra bæi á norðanverðum Ströndum;Húsavík, Heydalsá, Smáhamra og Broddanes. Í Hrútafirðinum verður hins vegar aðeins komið á einn bæ; Laxárdalur. Um miðjan daginn verður hressing í Sauðfjársetrinu í Sævangi og safnið verður skoðað í leiðinni. Um kvöldið er svo áætlað að …