Blundar í þér draumur um að skrifa bók? Langar þig að dusta rykið af hálfkláruðu handriti? Viltu yrkja meira? Viltu kannski bara fá næði til að koma hugmyndum þínum á blað?
Auðarstofa – Nýsköpunarsetur Dalabyggðar verður með vikulega ritsmiðju í apríl og verður sú fyrsta strax eftir páska.
Dagsetningar:
Þriðjudagurinn 7. apríl kl. 16:30-18:00
Þriðjudagurinn 14. apríl kl. 16:30-18:00
Þriðjudagurinn 21. apríl kl. 16.30-18:00
Þriðjudagurinn 28. apríl kl. 16:30-18.00
Hver ritsmiðja byrjar á stuttri upphitun (kveikju) sem er stýrt á staðnum. Í kjölfarið fær hver og einn tíma og næði til að vinna sjálfstætt að eigin hugmynd. Dagurinn endar á spjalli um skriftir, skáldskap og annað skemmtilegt.
Engin krafa er á þátttakendur að deila skrifum sínum eða skila af sér afurð en mikilvægt er að þátttakendur séu með grófa hugmynd að verkefni sem þau vilja vinna að hverju sinni.
Linda Guðmundsdóttir og Kristín Kristjánsdóttir leiða ritsmiðjurnar. Báðar hafa þær sýslað við ýmis skrif í gegnum árin. Nánari upplýsingar: linda@ssv.is
Við biðjum áhugasama vinsamlegast að skrá sig: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfnQD2LyrpIhv37P-5t3ZXwDctENr1tVxlpEVcGmun1Hb2xAw/viewform?usp=sharing&ouid=110838553189342264969
