Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hlutu á dögunum styrk úr Byggðaáætlun Innviðaráðuneytisins fyrir verkefnið Sjálfbær ferðaþjónusta í Dölum. Er styrkveitingin hluti af átaki innviðaráðuneytisins til að efla viðkvæmar byggðir landsins.
Verkefnið hér í Dölum er þríþætt. Í fyrsta lagi er um að ræða markaðsherferð fyrir Dalina sem áfangastað sem standa mun yfir í eitt ár. Í öðru lagi verður unnið náið með ferðaþjónum í gegnum vinnustofur, hóphandleiðslu og einstaklingsráðgjöf til að aðstoða þá í markvissri markaðssetningu. Í þriðja lagi er um að ræða mótun staðbundinnar stefnu í ferðaþjónustu með hagaðilum, með áherslu á nærandi ferðaþjónustu.
Styrkurinn nemur 9,0 milljónum króna.
Nánar um styrkveitinguna og aðra styrkhafa má finna á vefsíðu Stjórnarráðsins.
