Sérblað með Skessuhorni: Dalirnir – Fólkið og framtíðin

DalabyggðFréttir

Í dag, 11. júní á 31 afmæli Dalabyggðar kemur út 24 síðna sérblað um sveitarfélagið. Blaðið ber heitið Dalirnir – Fólkið og framtíðin og fylgir nýjasta Skessuhorni.

Þessari útgáfu af Skessuhorni með sérblaðinu verður dreift á heimili í Dalabyggð, það mun einnig fylgja til áskrifenda að Skessuhorni og þá verður víðtæk dreifing á ýmsum stöðum í sumar.

Allt efni blaðsins fjallar um fólk, verkefni og uppbyggingu í Dalabyggð en í blaðinu má finna fjölbreyttar umfjallanir og viðtöl.

„Við höfum unnið markvisst að því að endurreisa ímynd Dalabyggðar og sýna fram á þau tækifæri sem eru í héraðinu. Það er ekki lengur spurning um hvort Dalabyggð sé fær um að laða að sér fólk og fyrirtæki, heldur hvernig við getum best nýtt þau tækifæri sem skapast með okkar öfluga mannauði,“ skrifar Björn Bjarki Þorsteinsson m.a. í inngangsorðum sérblaðsins.

Vonum við að þessi útgáfa eigi bæði eftir að gleðja heimamenn og veita öðrum innsýn í okkar góða samfélag sem dafnar og sækir fram.

Íbúar Dalabyggðar mega eiga von á blaðinu á næstu dögum. Það er Skátafélagið Stígandi sem mun dreifa blaðinu innan Dalabyggðar.
Ef að íbúar hafa ekki fengið eintak til sín á mánudaginn nk. 16. júní biðjum við ykkur um að hafa samband á skrifstofu Dalabyggðar í síma 430-4700 en þar mun einnig verða hægt að nálgast eintök af blaðinu fram eftir sumri.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei