ATH. boðið verður upp á eftirfarandi hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Búðardal, 1. til 4. september n.k.
Skimun fyrir brjóstakrabbameini
Skimað verður fyrir brjóstakrabbameini mánudaginn 1. og þriðjudaginn 2. september
Einkennalausar konur 40 til 74 ára sem hafa fengið boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini geta pantað sér tíma.
Tímapantanir fara fram á Brjóstamiðstöð Landspítala í síma 543 9560 milli kl. 8:30-12:00 og 13:00-15:30 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið brjostaskimun@landspitali.is
Skimun fyrir leghálskrabbameini
Skimað verður fyrir leghálskrabbameini þriðjudaginn 2. september
Konur, 23 til og með 64 ára sem hafa fengið boðsbréf geta pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini.
Tímapantanir fara fram á Heilsugæslunni í Búðardal í síma 432 1450 mánudaga-fimmtudaga milli kl. 9:00-15:00 og föstudaga kl. 9:00-12:00
Kvensjúkdómalæknir
Helga Medek kvensjúkdómalæknir verður til viðtals miðvikudaginn 3. og fimmtudaginn 4. september
Tímapantanir fara fram á Heilsugæslunni í Búðardal í síma 432 1450 mánudaga-fimmtudaga milli kl. 9:00-15:00 og föstudaga kl. 9:00-12:00
Starfsfólk HVE Búðardal/Reykhólum