Stjörnuleikar „Allir með“ verða haldnir í nýja íþróttahúsinu okkar sunnudaginn 8. mars kl 13:00-14:00.
Sjörnuleikarnir eru samstarfsverkefni UDN, Dalabyggðar og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vesturlandi.
Stjörnuleikarnir er skemmtilegur íþróttadagur fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri með sérþarfir sem og börn sem ekki hafa fundið sig í hefðbundu íþróttastarfi. Þetta er dagur fyrir leik, gleði og samveru þar sem öll fá að prófa hinar ýmsu íþróttagreinar. Frábært tækifæri fyrir börn sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþrótta- og tómstundastarfi að koma og prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Fjölskylda og vinir velkomin!
Eftir kl 14.00 verður opið hús fyrir áhugasama að koma og prófa!

