Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga er til kl. 12 á hádegi föstudaginn 10. apríl. Yfirkjörstjórn Dalabyggðar tekur við framboðum þann dag kl. 11-12 í fundarsal stjórnsýsluhússins.
Upplýsingar um skil á framboðum og gögnum sem þurfa að fylgja því eru á heimasíðu Landskjörstjórnar. Í Dalabyggð skal skila meðmælum á pappír. Yfirkjörstjórn veitir nánari upplýsingar sé þess óskað.
Komi engir framboðslistar fram verða óbundnar kosningar.
Þeim sem setið hefur í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur er ekki skylt að taka kjöri fyrr en liðinn er jafnlangur tími og hann átti þar samfellt sæti síðast. Skrifleg tilkynning um að viðkomandi skorist undan endurkjöri skal hafa borist yfirkjörstjórn Dalabyggðar fyrir lok framboðsfrests, þ.e. föstudaginn 10. apríl kl. 12:00.
Viðmiðunardagur kjörskrár er miðvikudagurinn 8. apríl. Skráning lögheimilis kjósanda þann dag segir til um í hvaða sveitarfélagi hann kýs.
Upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar er að finna á heimasíðu landskjörstjórnar, kosning.is.
Yfirkjörstjórn Dalabyggðar
