Tilkynning frá KM vegna flöskumóttöku

DalabyggðFréttir

KM þjónustan í Búðardal vill koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri vegna skilagjaldsskyldra drykkjarumbúða (flöskur, dósir):

Kæru viðskiptavinir.

Þar sem allir gámar eru orðnir sléttfullir af endurvinnslu og þeir verða ekki tæmdir fyrr en í næstu viku þá þurfum við að loka á móttöku á endurvinnslu fram á miðja næstu viku.

Einnig, vegna orlofs þá verður endurvinnslan fyrir skilagjaldskyldar umbúðir Í Búðardal lokuð í  júlí og ágúst mánuði.

Þökkum skilningin og afsökum óþægindin sem þetta kann að valda

Kv. Starfsmenn K.M. þjónustunnar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei