Ungmennafélagið Ólafur pá styður myndarlega við uppbyggingu íþróttaaðstöðu

SveitarstjóriFréttir

Þann 11. febrúar sl., á 117 ára afmælisdegi ungmennafélagsins, afhentu fulltrúar  Umf. Ólafs Pá í Búðardal Dalabyggð veglegt gjafabréf vegna kaupa á búnaði í nýja íþróttamiðstöð í Búðardal sem verður vígð þann 28. febrúar næstkomandi.

Við sama tækifæri var undirritaður samstarfssamningur milli Dalabyggðar og Ungmennafélagsins Ólafs Pá um afnot og umgengnisrétt vegna þess búnaðar sem ungmennafélagið lætur íþróttamiðstöðinni í té. Samningurinn kveður á um skýra verkaskiptingu, ábyrgð og sameiginlegan vilja til að tryggja góða nýtingu og umhirðu búnaðarins til framtíðar.

Ungmennafélagið Ólafur Pái á sér merka og langa sögu. Félagið var stofnað 11. febrúar 1909 á slóðum Laxdælu og hefur allt frá upphafi gegnt lykilhlutverki í menningar-, íþrótta- og félagslífi svæðisins. Árið 1938 reisti félagið sitt fyrsta samkomuhús sem hlaut nafnið Sólvangur. Síðar var húsið selt og fjármunum varið í byggingu nýs félagsheimilis sem vígt var árið 1967. Sú bygging reis í samvinnu við önnur félagasamtök og hreppsnefnd, sem endurspeglar þann samstöðuanda sem jafnan hefur einkennt starf félagsins.

Árið 2020 festi ungmennafélagið kaup á húsnæði undir líkamsræktarsal og hefur síðan unnið markvisst að því að efla aðstöðu til heilsueflingar og íþróttaiðkunar í heimabyggð. Með framlagi sínu nú, bæði í formi búnaðar og fjárframlags til kaupa á búnaði í nýju íþróttamiðstöðinni, heldur félagið áfram þeirri hefð að styðja við uppbyggingu samfélagslegra innviða.

Framlag Ungmennafélagsins Ólafs Pá er mikilvægt innlegg í metnaðarfulla uppbyggingu íþróttaaðstöðu í Búðardal og mun nýtast íbúum á öllum aldri. Það er skýr birtingarmynd þess að öflug félagasamtök og sveitarfélag geta, í sameiningu, byggt upp aðstöðu sem styrkir samfélagið til framtíðar.

Dalabyggð þakkar Ungmennafélaginu Ólafi Pá fyrir rausnarlegt framlag og farsælt samstarf sem á sér rætur í meira en aldarlangri sögu.

Á mynd hér með eru f.h. ungmennafélagsins þau Bergþóra formaður stjórnar, Ingibjörg gjaldkeri og Skjöldur Orri formaður Þorrablótsnefndar 2026 en ágóði af þeim viðburði rann til kaupa á búnaði sbr. fyrrgreint gjafabréf. F.h. Dalabyggðar eru þeir Ísak lýðheilsufulltrúi og Bjarki sveitarstjóri á myndinni.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei