Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal – næstu skref

SveitarstjóriFréttir

Líkt og ýmsum er kunnugt um undirrituðu Byggðastofnun og Dalabyggð viljayfirlýsingu um samstarf við uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í Búðardal. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Byggðastofnun leggja til fjármagn í verkefnið, allt að 150 milljónir króna, á meðan Dalabyggð leggur til lóð, teikningar, gatnagerð og lagnir að lóð þar sem fyrirhugað atvinnuhúsnæði mun rísa.

Um er að ræða tilraunaverkefni sem miðar að því að bregðast við skorti á fjárfestingu í atvinnuhúsnæði á landsbyggðinni. Markmið verkefnisins er að skapa aðstöðu fyrir atvinnustarfsemi á svæði þar sem skortur á hentugu húsnæði hefur hamlað frekari uppbyggingu og nýsköpun.

Af ýmsum ástæðum varð ákveðið hlé í undirbúningi þessa sl. haust en nú ræsum við að nýju, af fullum krafti og af því tilefni og í tengslum við verkefnið verður Rúnar Þór Guðbrandsson, fulltrúi Byggðastofnunar, til viðtals og samráðs við áhugasama aðila í Búðardal. Hann verður með viðveru á skrifstofu Dalabyggðar (Nýsköpunarsetrinu) eftir hádegi miðvikudaginn 18. mars og fram að hádegi föstudaginn 20. mars n.k.

Áhugasamir eru hvattir til að bóka fund með því að senda tölvupóst á runar@dugandi.is eða hringja í síma 861-4000.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei