Upplýsingavefur um sameiningarviðræður opnaður

DalabyggðFréttir

Í dag fór upplýsingavefur samstarfsnefndar um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra í loftið á léninu  https://dalhun.is

Á honum er að finna ýmsar upplýsingar um sameiningarviðræðurnar og íbúakosningar um sameiningartillöguna, auk frétta af viðræðum og viðburðum.
Á síðunni er einnig að finna svör við spurningum sem algengt er að íbúar velti upp í tengslum við sameiningarviðræður og eyðublað fyrir nýjar fyrirspurnir ef lesendur finna ekki svarið á síðunni.

Hægt verður að nálgast allt kynningarefni um sameiningarviðræðurnar á vefnum, m.a. glærur og upptökur frá íbúafundum, fundargerðir og fleira.

Myndin er frá sameiginlegum fundi sveitarstjórna, starfsfólks og fulltrúa fagnefnda Dalabyggðar og Húnaþings vestra.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei