Föstudaginn 20. febrúar var úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs í fimmta sinn. Viðburðurinn var haldinn að Nýp á Skarðsströnd. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í Dalabyggð.
Til úthlutunar voru 20.825.000 krónur og fengu 29 verkefni styrk. Fjölbreytni umsókna eykst frá ári til árs og margt spennandi í farvatninu. Verkefni sem styrkt hafa verið á undanförnum árum hafa glætt mannlíf og menningarlíf í Dalabyggð og verkefnin í ár boða spennandi tíma.
Tveir styrkþegar héldu kynningar á sínum verkefnum. Annars vegar Halla Sigríður Hrefnu Steinólfsdóttir sem sagði frá sölvatekju við Ytri-Fagradal og samstarfsverkefni hennar við Fine Foods Íslandica um þróun á framleiðsluferlum til að nýta þessa auðlind betur.
Ásmundur Einar Daðason sagði síðan frá alþjóðlegu samstarfsverkefni sem tengir Ísland og Mongolíu. Ýmis samstarfsverkefni hafa sprottið upp úr þessari vegferð og er eitt af þeim verkefni í Dölum, sem snýr að því að móta og prófa þátttökumiðað fyrirkomulag í ferðaþjónustu þar sem bændur geta boðið fólki heim og ferðamenn fá að taka þátt í daglegum störfum, í stað þess að vera áhorfendur.
Athöfninni lauk með ávarpi sveitarstjóra þar sem Bjarki þakkaði m.a. verkefnastjóranum Lindu Guðmundsdóttur sérstaklega fyrir gott utanumhald um verkefnið allt og að því loknu var kaffisamsæti á Nýp sem þau Þóra og Sumarliði staðarhaldarar höfðu útbúið af myndarbrag.
Eftirtaldin verkefni hlutu styrk úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs árið 2026:
- D&D í Dölunum
Atli Freyr Guðmundsson
150 000 kr - Geitagræjur
Halla Sigríður Hrefnu Steinólfsdóttir
200 000 kr - Prjónakaffi
Guðrún Jóhannsdóttir
200 000 kr - Jólamarkaður
Jóhanna Lind Brynjólfsdóttir
200 000 kr - Art Exhibition
Pietro Porcu og Nicole Salteri
250 000 kr - VALL-EY
Atli Freyr Guðmundsson
250 000 kr - Sólarsölin
Halla Steinólfs
300 000 kr - La Sagra
Pietro Porcu og Nicole Salteri
350 000 kr - Hestatómstundir – búnaðarkaup
Hestamannafélagið Glaður
400 000 kr - Er líða fer að jólum
Jón Egill Jóhannsson
400 000 kr - Sveit í sveit
Skátafélagið Stígandi
400 000 kr - Dalamey handverk
Sigríður Jóna Eggertsdóttir
450 000 kr - Colors of fjords
Fitore Berisha og Juan Cerezales Tisnes
500 000 kr - Myndir sem selja
Benedikt Jóhannesson
500 000 kr - Listviðburðir í Dalíu
D9 ehf
600 000 kr - Hiking Viking – Gönguferðir frá Eiríksstöðum
History up close ehf
650 000 kr - Brekkuskógur – útivistarperla við Búðardal
Skógræktarfélag Dalasýslu
700 000 kr - Flygill fyrir Dalina
Sigurbjörg I. Kristínardóttir o.fl.
750 000 kr - Dalahvítlaukur
Svarthamar vestur ehf
800 000 kr - Dalapeysan – og fylgihlutir
Handverksfélagið Bolli
850 000 kr - Endurnýting ullar – Vöruþróun á vörum
Rauðbarði ehf
900 000 kr - Grafarlaug – skjól og fegrun
Ungmannafélagið Æskan
925 000 kr - Mini-gólf braut í Búðardal
Fremri fasteignir ehf
1 000 000 kr - Túngarður – ræktun og framleiðsla tága úr víði
Katrín Dröfn Guðmundsdóttir og Sveinbjörn Júlíus Tryggvason
1 100 000 kr - Dagverðarnes – áfangastaður úr alfararleið
Hollvinafélag Dagverðarneskirkju
1 100 000 kr - Daglegt líf og búskapur í Dölum – Prófun á þátttökumiðaðri ferðaþjónustu
Flora ehf
1 200 000 kr - Bambagarður
Caroline Baare Schmidt
1 500 000 kr - Auðlind bújarða
Anna Berglind og Ólafur Bragi
2 000 000 kr - Vinnslubúnaður fyrir bláskel
Birgisás
2 200 000 kr
