Útivistarreglur barna. Foreldrar verum samtaka!

DalabyggðFréttir

Frá 1.september breyttust útivistatími barna. Þessar breytingar eru í gildi til 1.maí 2026.

Börn 12 ára og yngri mega ekki vera úti eftir klukkan 20:00.
Ungmenni á aldrinum 13-16 ára mega ekki vera úti eftir klukkan 22:00.

Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja.

Aldur er miðaður við fæðingarár.

Áætluð svefnþörf barna og ungmenna í grunnskóla eru 10 tímar.

Bregða má út af útivistareglum þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og ungmenni eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.

 

Útivistarreglurnar skv 92 gr. laga nr 80/2002.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei