Frá 1.maí breyttust útivistatími barna. Þessar breytingar eru í gildi til 1.september.
Börn 12 ára og yngri mega EKKI vera úti eftir klukkan 22:00.
Ungmenni á aldrinum 13-16 ára mega EKKI vera úti eftir klukkan 24:00.
Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja.
Aldur er miðaður við fæðingarár.
Áætluð svefnþörf barna og ungmenna í grunnskóla eru 10 tímar.
Bregða má út af útivistareglum þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og ungmenni eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
Útivistarreglurnar skv 92 gr. laga nr 80/2002.