Laugardaginn 28. febrúar 2026 kl. 13:30 bjóðum við íbúum Dalabyggðar og öðrum þeim sem tök hafa á til vígsluathafnar á nýjum íþróttamannvirkjum í Búðardal.
Meðal gesta sem ávarpa munu samkomuna verða forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, Eygló Fanndal Sturludóttir Íþróttamaður ársins 2025 og fulltrúar frá ÍSÍ, UMFÍ sem og verktökum og eftirlitsaðila/byggingastjóra, í kjölfarið mun sóknarpresturinn okkar í Dölum, séra Snævar Jón Andrjesson, blessa mannvirkið og þá starfsemi sem í því verður.
Að loknum ávörpum þá mun verða boðið upp á tertu sem Geirabakarí hefur sett saman í tilefni áfangans, kvenfélagskonur úr kvenfélaginu Fjólu hella upp á kaffi og framreiða safa fyrir yngri kynslóðina samhliða því sem íþróttafólk á öllum aldri úr Dölunum munu sýna þær íþróttir sem nú eru stundaðar í Dölum sbr. glímu, badminton, körfubolta, fótbolta og boccia svo dæmi séu tekin.
Einnig verðum gestum boðið upp á að ganga um mannvirkin og skoða þá aðstöðu sem í kjölfarið verður tekin í gagnið fyrir utan það að útisvæðið á eftir að klára að fullu. Heitir pottar og sundlaug verði tilbúin til notkunar þegar líður á marsmánuð.
Sjáumst laugardaginn 28, febrúar og fögnum saman þessum tímamótum í Dölum.
