Langar þig að hafa áhrif og skapa eitthvað skemmtilegt?
Við leitum að hressum og hugmyndaríkum krökkum á áldrinum 10-18 ára til að sitja í stýrihóp barnamenningarhátíðarinnar Barnó – BEST MEST VEST sem fer fram í október.
Í stýrihópnum færðu að taka þátt í að móta hátíðina, koma með hugmyndir og hafa áhrif á listræna stefnu hennar.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir krakka með áhuga á listum og menningu til að efla sköpunargleði, ábyrgð og sjálfstraust, auk þess að kynnast öðrum börnum með svipuð áhugamál víðs vegar af Vesturlandi. Börn af erlendum uppruna eru sérstaklega hvött til þátttöku.
Gert er ráð fyrir allt að sex fundum, sem hver um sig verður ekki lengri en 40 mínútur. Flestir fundir fara fram á netinu, en stefnt er að því að bjóða hópnum á einn til tvo staðfundi þar sem veitingar verða í boði.
Skilyrði er að þátttakendur séu búsettir á Vesturlandi.
Barnó fer fram í október 2026 um allt Vesturland og er vettvangur fyrir fjölbreytta og lifandi barnamenningu á svæðinu.
Frekari fyrirspurnir skulu sendast á menningarfulltrúa SSV, sigursteinn@ssv.is

