Aðalfundur Krabbameinsfélags Breiðfirðinga 2019

DalabyggðFréttir

Aðalfundur Krabbameinsfélags Breiðfirðinga verður haldinn miðvikudaginn 10. apríl 2019 kl. 17 í Rauða-Krosshúsinu Búðardal.   Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosinn fulltrúi á aðalfund Krabbameinsfélags Íslands Fræðsluerindi um krabbamein. Önnur mál.   Á fundinn kemur Guðmundur Pálsson, vefstjóri K.Í. sem er hugmyndasmiðurinn að KARLAKLEFANUM sem auglýstur var í Mottu mars í sjónvarpinu og vakti mikla athygli. Hann ætlar að segja frá karlaklefanum …

Refa- og minkaveiðar 2019

DalabyggðFréttir

Dalabyggð auglýsir eftir áhugasömum veiðimönnum til að sinna refa- og minkaveiðum í Dalabyggð árið 2019.   Veiðimenn skulu vera með gilt veiðikort, staðkunnátta og reynsla af refa- og minkaveiðum er æskileg. Núverandi veiðimenn sveitarfélagsins eru hvattir til að sækja aftur um og halda áfram sínu góða starfi.   Refaveiðinni er skipt upp í 13 svæði eins og verið hefur undanfarin …

Íbúaþing 2019

DalabyggðFréttir

Íbúaþing var haldið þann 17. mars sl. í Tjarnarlundi. Á íbúaþinginu unnu 40 manns í hópavinnu og ræddu atriði eins og eflingu samfélagsins, fjölbreyttari atvinnutækifæri, aukin lífsgæði og fjölskylduvænleika og hver óskastaðan ætti að vera varðandi þau eftir þrjú og sjö ár. Þá voru ræddar ýmsar stefnur s.s. um atvinnumál, fjölskyldumál, umhverfi, markaðsmál, samgöngur og menningarmál og þær aðgerðir sem …

Ársreikningur 2018

DalabyggðFréttir

Á fundi sveitarstjórnar þann 14. mars sl. var ársreikningur Dalabyggðar tekinn til fyrri umræðu.   Rekstri er skipt í A og B hluta. Í A hluta er rekstur málaflokka og þjónusta við íbúa sveitarfélagsins sem er fjármögnuð með skatttekjum og þjónustugjöldum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki og rekstrareiningar sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru fjármagnaðar með þjónustutekjum t.d. …

Hundahald í Búðardal

DalabyggðFréttir

Hundahald í Búðardal sætir nokkrum takmörkunum samanber samþykkt um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003. Hundeigendum í Búðardal ber að skrá hunda sína og greiða 8.300 kr. í skráningargjald. Eftir það er 6.500 kr. árgjald með gjalddaga 1. apríl og eindaga 1. maí.   Eigendum hunda í Búðardal ber skylda til að skrá hunda sína á skrifstofu Dalabyggðar og greiða skráningargjald. Í …

Leir-Gugga

DalabyggðFréttir

Guðbjörg Björnsdóttir leirlistarkona mun segja frá rannsóknum sínum og tilraunum með Dalaleirinn laugardaginn 6. apríl 2019 kl. 15 á Byggðasafni Dalamanna. Þá mun hún segja frá ferð sinni til Þýskalands sumarið 2017 og starfsnámi í postulínsverksmiðjunni Wagner & Apel í Lippelsdorf. Allir eru velkomnir á sögustund á Byggðasafni Dalamanna á meðan húsrúm leyfir.

Kótilettukvöld 2019

DalabyggðFréttir

Lionsklúbbur Búðardals heldur kótilettukvöld í Dalabúð laugardaginn 23. mars kl. 20.   Á boðstólum eru lambakótilettur með tilheyrandi meðlæti. Miðinn gildir sem happdrættismiði og auk þess verður hægt að kaupa miða á skemmtunina. Allir sem að skemmtuninni koma gefa vinnu sina og ágóði rennur til styrktar unglingadeildarinnar Óskars, skátafélagsins Stíganda og verkefnasjóðs Lionsklúbbs Búðardals. Kristján og Lolli munu sjá um …

Félagsvist í Árbliki

DalabyggðFréttir

Kvenfélagið Fjóla heldur sitt þriðja og síðasta kvöld í félagsvist kl. 20 föstudaginn 15. mars 2019 í Árbliki.   Það kostar 1.000 kr. að taka þátt fyrir fullorðna, en frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Veitt verða kvöldverðlaun, heildarverðlaun og að sjálfsögðu kaffiveitingar.

Þrígangur og slaktaumur

DalabyggðFréttir

Keppt verður í þrígangi og slaktaumatölti í Nesoddahöllinni kl. 14 sunnudaginn 24. mars. Allar nánari upplýsingar um dagskrá, keppnisfyrirkomulag og um skráningar eru á heimasíðu hestamannafélagsins Glaðs.