Brautargengisnámskeið

DalabyggðFréttir

Impra nýsköpunarmiðstöð gengst nú í þrettánda sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni. Haustið 2009 er áætlað að halda námskeiðið á tveimur stöðum á landinu, þ.e. í Borgarnesi og Akureyri. Alls hafa yfir sjö hundrað konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi.

Frekari upplýsingar
Námskeiðið er í umsjón Selmu Daggar Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Námskeiðsgjald er 40.000,- kr. á hvern nemenda, en algengt er að stéttarfélög hafi tekið þátt í greiðslu námskeiðskostnaðar. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Impru, en einnig er hægt að hafa samband við verkefnisstjóra með tölvupósti eða hringja í síma 460 7975.

Brautargengi er 75 kennslustunda námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja. Meðal markmiða námskeiðsins eru að nemendur öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að stofnun og rekstri fyrirtækja, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun. Einnig öðlast nemendur tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur. Kennsla mun að þessu sinni fara fram á stöðunum þremur auk þess sem þátttakendur hitta aðra hópa tvisvar á námskeiðstímanum. Lögð verður áhersla á að kennarar hafi reynslu og þekkingu af atvinnulífinu og miðli hagnýtri þekkingu til nemenda. Þátttakendur fá einnig handleiðslu hjá starfsmönnum Impru og samstarfsaðila á milli kennslustunda.

Fyrir hverja er Brautargengi?
Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Eina inntökuskilyrðið er að þátttakendur hafi viðskiptahugmynd til að vinna með á meðan námskeiðinu stendur.

Skipulag námskeiðsins
Námskeiðið hefst um miðjan september og er kennt einu sinni í viku frá fram í desember en þá lýkur námskeiðinu með formlegri útskrift. Boðið verður upp á vinnusmiðjur utan hefðbundinna kennslustunda þar sem þátttakendum gefst tækifæri á að vinna að gerð viðskiptaáætlunar undir handleiðslu leiðbeinanda.
Námskeiðið í Borgarnesi er samstarfsverkefni Impru og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.

Reynsla annarra
Boðið hefur verið upp á Brautargengisnámskeið reglulega í Reykjavík síðan 1996 en á árinu 2003 var í fyrsta sinn boðið upp á námskeiðið á landsbyggðinni en aðkoma sveitarfélaga hafa gert það að verkum að unnt er að halda námskeiðin reglulega víða um land. Uppbygging námsins á landsbyggðinni er sú sama og á höfuðborgarsvæðinu. Yfir sjö hundrað konur hafa lokið Brautargengisnámi frá upphafi, þar af um 240 á landsbyggðinni. Kannanir sem gerðar hafa verið um árangur námskeiðanna sýna að um helmingur kvenna sem tekið hafa þátt í námskeiðinu frá upphafi nú með fyrirtæki í rekstri. Flest fyrirtækjanna eru með einn til tvo starfsmenn, en meðalfjöldi starfsmanna er níu. Eftirgrennslan hefur ennfremur leitt í ljós að einungis ein af hverjum 10 konum hefur alfarið lagt á hilluna öll áform um fyrirtækjarekstur. Þó ekki hafi allar hafið rekstur eru margar enn að vinna að undirbúningi sinna viðskiptahugmynda.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei