Menningarmálanefnd heldur tvo fundi um félagsheimili í Dalabyggð í samstarfi við menningarfulltrúa SSV dagana 5. og 6. maí nk.
Vegna sóttvarnaráðstafana verða fundirnir haldnir í fjarfundi gegnum Microsoft Teams. Hlekki á fundina má finna hér fyrir neðan. Fundinum verður einnig streymt á YouTube síðu Dalabyggðar, Dalabyggð TV.
Á fundunum verður farið yfir skipulag og rekstur hvers félagsheimilis og umræður um mögulegt framtíðarhlutverk hvers og eins.
Fundur vegna Árbliks og Dalabúðar verður haldinn miðvikudaginn 5. maí kl. 20. Hlekkur á fund: Árblik og Dalabúð
Fundur vegna Tjarnarlundar og Staðarfells verður haldinn fimmtudaginn 6. maí kl. 20. Hlekkur á fund: Tjarnarlundur og Staðarfell
Íbúar eru hvattir til þátttöku. Gott getur verið að aðstoða eldri fjölskyldumeðlimi og vini við að tengjast fundunum.
Hlekkur á fund: Árblik og Dalabúð
Hlekkur á fund: Tjarnarlundur og Staðarfell