Á Silfurtúni eru laus til umsóknar störf sjúkraliða, aðhlynning og leiðbeinandi í félagsstarfi. Störfin eru bæði til skemmri og lengri tíma.
Upplýsingar um störfin veitir Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, netfangið er silfurtun@dalir.is. Ráðið verður í störfin sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2022. Umsóknir á að senda í tölvupósti á netfangið silfurtun@dalir.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Á Silfurtúni eru 13 íbúar og starfsmenn eru um 12.
Sjúkraliði
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Leyfisbréf er skilyrði.
Starf við aðhlynningu
Laust er til umsóknar starf í aðhlynningu á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Reynsla af aðhlynningu er æskileg.
Leiðbeinandi í félagsstarfi
Laust er til umsóknar starf við félagstarf aldraðra á Silfurtúni. Um er að ræða 50% starf.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og skapandi. Reynsla af svipuðu starfi er kostur.
Sjá einnig: Laus störf