Við minnum á að umsóknarfrestur um sjálfboðavinnuverkefni Dalabyggðar er í dag, 20. maí – sjá frétt frá 28. apríl sl. : Sjálfboðaliðaverkefni 2021
Byggðarráð afgreiðir umsóknir. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta til að hrinda í framkvæmd brýnum umhverfisverkefnum í sínu næsta nágrenni.
Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru að umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð, sé ekki í vanskilum við sveitarfélagið og að umsókninni fylgi lýsing á verkefninu og kostnaðaráætlun. Forsvarsmaður verkefnis skal hafa samráð við verkstjóra Dalabyggðar um framkvæmd verkefnisins.
Reglur og umsóknareyðublöð um sjálfboðavinnuverkefni má finna hér:
- Sjálfboðaliðaverkefni – umsóknareyðublað
- Reglur Dalabyggðar um greiðslu kostnaðar við sjálfboðavinnuverkefni
Fyrri úthlutanir:
Hér fyrir neðan má sjá stutt yfirlit yfir þau verkefni sem hafa hlotið samþykki síðast liðin ár. Upplýsingar um afgreiðslu umsókna er hægt að finna í fundargerðum hér á heimasíðunni.
Vekjum athygli á því að einhver verkefni sem talin eru upp hér fyrir neðan hafa fallið út og þá hefur ekki farið fram greiðsla vegna þeirra.
2020:
Framlag vegna skjólbeltis
Umsókn um lokun skurðar
2019:
Fegrun við enda manar við Vesturbraut við Holt
2018:
Merking göngustígs á Jörvahnjúk
Skjólbelti við Hjarðarholtskirkjugarð
Vesturbraut milli Vínbúðar og Arion banka (auðveldara aðgengi fyrir slátt)
Steinar frá Vestfjarðavíkingunum (upplýsingaskilti)
Plan við N1, drenlögn
MS beyjan – Vesturlandsvegur/Brekkuhvammur (þökulagning)
2017:
Birkiplöntur við Ægisbraut
Loka skurði við Vesturlandsbraut
Þökulögn við Ægisbraut
Höfnin og Leifsbúð (holufylling grjótgarðs)
2016:
Röðull á Skarðsströnd (nýtt gólf)
Völlurinn í Dalnum og umhverfi hans
Sökkull á slökkvistöð (málun)
Sökkull á Réttinni (málun)
Heimkeyrslan að Hvammi
2015:
Njólastríðið mikla
Stikun gönguleiða á Skarðsströnd
Ávaxtatré, grenitré
Göngustígur norðan Búðardals
Svæðið fyrir framan afurðastöðina
Steinar frá Vestfjarðavíkingunum
Bátskjölur við Leifsbúð
Göngustígur við Stekkjarhvamm
Leikvöllur við Stekkjarhvamm