Tækniþróðunarstjóður heldur kynningarfund í húsnæði Símenntunar, Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, fimmtudaginn 29. ágúst kl. 12-13.
Kolbrún Bjargmundsdóttir sérfræðingur á rannsóknar- og nýsköpunarsviði Rannís fer yfir styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs, skattaafdrátt vegna rannsóknar- og þróunarverkefna, nýsköpunarsjóð námsmanna og Eurostars-2. Kaffi og meðlæti er í boði.
Áhugasamir hafi samband við Svölu Svavarsdóttur, netfangið svala@ssv.is.
Næsti umsóknarfrestur í Tækniþróunarsjóðinn er til 16. september.