Föstudaginn 4. nóvember 2022 var úthlutunarhátíð DalaAuðs haldin að Laugum í Sælingsdal.
DalaAuður er verkefni undir hatti brothættra byggða og styrkt af Byggðastofnun. Um er að ræða fyrstu úthlutun úr frumkvæðissjóði DalaAuðs þar sem til úthlutunar voru 12.250.000 kr.-
Í sjóðinn bárust 30 umsóknir og voru 21 verkefni af þeim sem fengu styrk að þessu sinni.
Úthlutunarhátíðin var vel skipulögð, hófst á úthlutunum (sjá yfirlit styrkþega hér fyrir neðan) og því næst voru tvö verkefni kynnt betur.
Annars vegar verkefnið „Umhverfisvænni og heilbrigðari landbúnaður með hjálp Bokashi“ sem Anna Berglind Halldórsdóttir kynnti og hins vegar verkefnið „Sjúkraþjálfara aðstaða í Búðardal“ sem Ingibjörg Jóhannsdóttir og Jóhanna María Sigmundsdóttir kynntu.
Að því loknu flutti Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar ávarp. Bjarki óskaði styrkhöfum til hamingju og sagði meðal annars:
„Það er hugur í okkur í Dölunum, það mátti svo sannarlega sjá á bæði fjölda umsókna sem og gæðum umsókna í frumkvæðissjóðinn, afar spennandi verkefni sem öll sem eitt hafa það að markmiði að styrkja innviðina okkar.„
Bjarki hvatti fólk einnig til að horfa til þeirra jákvæðu viðhorfsbreytinga sem eru að verða á ímynd dreifbýlis og smærri byggða um alla Evrópu.
Að formlegri dagskrá lokinni bauð Dalabyggð gestum upp á veitingar, þar sem fólk náði að taka tal saman um hugmyndir styrkþega og framtíð Dalabyggðar, sem er svo sannarlega björt.
Eftirtaldin verkefni hafa hlotið styrk úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs árið 2022:
- Verkefnið Complete vocal söngnámskeið
Fær 150.000 kr. í styrk
Umsækjandi er Guðmundur Sveinn Bæringsson - Er líða fer að jólum
200.000 kr.
Umsækjandi er Alexandra Jónsdóttir - Námskeið í kjötvinnslu
200.000 kr.
Umsækjandi er Skúli Hreinn Guðbjörnsson - Dalablaðið á netinu
200.000 kr
Umsækjandi er Sögufélag Dalamanna og Kruss ehf - Rafíþróttadeild Undra
200.000 kr
Umsækjandi er Íþróttafélagið Undri - Skarðsstöð – deiliskipulagsgerð fyrir ferðaþjónustu
250.000 kr
Umsækjandi er Harpa Helgadóttir - Good Morning Iceland
350.000 kr
Umsækjandur eru Alexandre Jean-Francois Vicente og Malou Havaiki Cervantes - Fótadalsvirkjun
400.000 kr
Umsækjandi er Guðlaugur S. Sigurgeirsson ehf. - Gönguleið Fellsströnd – Skarðsströnd
400.000 kr
Umsækjendur eru Guðmundur Halldórsson og Trausti Bjarnason - Fræhöll í Búðardal
400.000 kr
Umsækjandi er Dalirnir heilla ehf. - Útiræktun grænmetis í Ásgarði
500.000 kr
Umsækjandi er Skugga-Sveinn ehf - Aðgengi skóga í Dalabyggð – Brekkuskógur og Laxaborg
500.000 kr
Umsækjandi er ný endurreist, Skógræktarfélag Dalasýslu - Uppsetning á leikverki
500.000 kr
Umsækjandi er Leikklúbbur Laxdæla - Fræðsla og sjálfshjálp vegna geðheilsu
500.000 kr
Umsækjandi er Bjarnheiður Jóhannsdóttir. - Jólasveinar á Íslandi eru úr Dölunum
600.000 kr
Umsækjandi er Kruss ehf - Búnaðarkaup vegna íþróttastarfs barna
1.000.000 kr
Umsækjandi er Íþróttafélagið Undri. - Rúllutætari til uppgræðslu
1.000.000 kr
Umsækjandi er Búnaðarfélag Hvammsfjarðar - Dýragarðurinn Hólum
1.000.000 kr
Umsækjandi er Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld - Dalahvítlaukur
1.000.000 kr
Umsækjandi er Svarthamar Vestur ehf - Sjúkraþjálfara aðstaða í Búðardal
1.300.000 kr
Umsækjandi er Ungmennafélagið Ólafur Pá - Umhverfisvænni og heilbrigðari landbúnaður með hjálp Bokashi
1.600.000 kr
Umsækjendur eru Anna Berglind Halldórsdóttir og Ólafur Bragi Halldórsson