Fjölbreytt dagskrá er að vanda í boði hjá Félagi eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi fram til vorsins.
Gönguhópur
Gönguhópurinn er á ferðinni mánudaga og föstudaga. Mæting er hjá Samkaupum kl.10:30. Kaffisopi er síðan á Silfurtúni að göngu lokinni.
Þriðjudagskaffi á Silfurtúni
Á þriðjudögum er kaffisopi í boði á Silfurtúni kl. 10:30, er hann í boði Silfurtúns.
Sælingsdalslaug
Frítt er í sund á Laugum á þriðjudögum. Farið er frá Leifsbúð kl. 15:15.
Tækjasalur Umf. Ólafs páa
Tækjasalur Umf. Ólafs páa er opinn fyrir eldri borgara kl. 11:15-12:45 á miðvikudögum.
Kór eldri borgara
Kórinn æfir á mánudögum kl. 17 í tónlistarskólanum.
Fimmtudagssamvera
Samvera verður á fimmtudögum kl. 13:30-16, ýmist í Leifsbúð, Króksfjarðarnesi eða Barmahlíð.
6. febrúar
|
Fundur, bingó og kaffi í Leifsbúð
|
13. febrúar
|
Opið hús, kaffi og fleira í Leifsbúð
|
20. febrúar
|
Félagsvist og kaffi í Leifsbúð
|
27. febrúar
|
Opið hús, kaffi og fleira í Leifsbúð
|
6. mars
|
Bingó og kaffi í Barmahlíð.
|
13. mars
|
Opið hús, kaffi og fleira í Leifsbúð
|
20. mars
|
Félagsvist og kaffi í Króksfjarðarnesi
|
27. mars
|
Aðalfundur og kaffi í Leifsbúð
|
3. apríl |
Bingó, kaffi og fleira í Leifsbúð
|
10. apríl
|
Lokasamkoma, dagskrá og kaffi í Leifsbúð
|
Námskeið
Áformað er að bjóða upp á þrjú námskeið á vorönn. Námskeiðin verða ekki haldin nema að minnsta kosti 10 þátttakendur fáist á hvert námskeið. Því þarf að láta formann eða varaformann vita fyrir 11. febrúar um þátttöku. Námskeiðin verða niðurgreidd fyrir félagsmenn. Þau námskeið sem bjóðast eru sundleikfimi, postulínsmálun og útskurðarnámskeið.
Nýir félagar
Félaginu vantar fleiri virka félaga til að það geti haldið áfram að starfa af sama krafti og undanfarið. Félagið er opið 60 ára og eldri og þeirra mökum óháð aldri. Ýmis fríðindi fylgja félagsaðild t.d. afsláttur hjá mörgum verslunum og þjónustu. Nýir félagsmenn eru alltaf velkomnir í félagið.