Skipulags- og byggingamál
Byggingarfulltrúi
Kristján Ingi Arnarsson er byggingarfulltrúi fyrir Árneshrepp, Dalabyggð, Kaldrananeshrepp og Reykhólasveit í leyfi Boga Kristinssonar.
Póstfang; Miðbraut 11, 370 Búðardalur
Sími: 430 4700
Netfang: byggingarfulltrui @ dalir.is
Skrifstofa Dalabyggðar er opin 10-14 virka daga.
Símatímar eru þriðjudaga-föstudaga, kl. 10-12.
Mánudaga er viðvera á skrifstofu Reykhólahrepps.
Þriðjudaga-föstudaga er viðvera á skrifstofu Dalabyggðar.
Embætti byggingarfulltrúa er starfrækt samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og reglugerðum þeim tengdum.
Óheimilt er, samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því, burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur mannvirki, nema að fengnu leyfi viðkomandi sveitarstjórnar.
Framkvæmdir skulu vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag. Byggingarleyfi felur í sér samþykkt aðaluppdrátta og framkvæmdaáforma eða samþykkt á breyttri notkun húss.
Auk útgáfu byggingarleyfa annast embættið yfirferð og samþykkt séruppdrátta, úttektir, samþykkt á byggingarstjórum, skráningu iðnmeistara á verk, fasteignaskráningu, yfirferð eignaskiptayfirlýsinga og gefur umsagnir vegna starfs- og veitingaleyfa.
Þá varðveitir byggingarfulltrúi uppdrætti af húsum í sveitarfélaginu og geta allir fengið ljósrit af þeim gegn hóflegu gjaldi.
Byggingafulltrúi veitir fúslega faglegar ráðleggingar bæði í viðtals- og símatímum.