Dalabyggð, í samvinnu við Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) auglýsir starf íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að stýra metnaðarfullu og lifandi starfi. Starfshlutfall er 80% – 100% auk fastrar yfirvinnu.
Helstu verkefni eru
- að samþætta og efla íþrótta- og tómstundastarf í Dalabyggð og stuðla að samfellu í skóla, íþrótta- og félagsstarfi barna í sveitarfélaginu.
- framkvæmdastjórn UDN.
- yfirumsjón með vinnuskóla, félagsmiðstöð og íþróttamannvirkjum.
- forstaða og aðstoð við félagsstarf aldraðra.
- aðstoð við ungmennaráð Dalabyggðar.
- skipulag og verkefnastjórn í ýmsum málum sem til falla, t.d. forvarnamál og átaksverkefni.
Hæfniskröfur eru
- menntun sem nýtist í starfi.
- reynsla og þekking á íþrótta- og æskulýðsmálum.
- góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.
- reynsla af stjórnun, stefnumótun og fjárhagslegri ábyrgð.
- framsýni og metnaður í starfi.
- almenn tölvukunnátta.
Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn komi til með að búa í Dalabyggð og hann þarf að hafa hreint sakavottorð. Starfsstöð verður á skrifstofu Dalabyggðar.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SDS eða viðeigandi fagfélags.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Fyrirspurnir má senda á sveitarstjori@dalir.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2018.