Íþrótta- og tómstundafulltrúi

DalabyggðFréttir

Dalabyggð, í samvinnu við Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) auglýsir starf íþrótta- og tómstundafulltrúa.

Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að stýra metnaðarfullu og lifandi starfi.  Starfshlutfall er 80% – 100% auk fastrar yfirvinnu.

Helstu verkefni eru

  • að samþætta og efla íþrótta- og tómstundastarf í Dalabyggð og stuðla að samfellu í skóla, íþrótta- og félagsstarfi barna í sveitarfélaginu.
  • framkvæmdastjórn UDN.
  • yfirumsjón með vinnuskóla, félagsmiðstöð og íþróttamannvirkjum.
  • forstaða og aðstoð við félagsstarf aldraðra.
  • aðstoð við ungmennaráð Dalabyggðar.
  • skipulag og verkefnastjórn í ýmsum málum sem til falla, t.d. forvarnamál og átaksverkefni.

Hæfniskröfur eru

  • menntun sem nýtist í starfi.
  • reynsla og þekking á íþrótta- og æskulýðsmálum.
  • góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • reynsla af stjórnun, stefnumótun og fjárhagslegri ábyrgð.
  • framsýni og metnaður í starfi.
  • almenn tölvukunnátta.

Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn komi til með að búa í Dalabyggð og hann þarf að hafa hreint sakavottorð.  Starfsstöð verður á skrifstofu Dalabyggðar.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SDS eða viðeigandi fagfélags.

Umsóknum skal skila til skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Fyrirspurnir má senda á sveitarstjori@dalir.is.

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2018.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei