Íþrótta- og tómstundafulltrúi UDN

DalabyggðFréttir

Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga (UDN) auglýsir eftir íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að stýra metnaðarfullu og lifandi starfi. Starfshlutfall er 80% auk fastrar yfirvinnu.
Helstu verkefni eru
· framkvæmdastjórn UDN
· að samþætta og efla íþrótta- og tómstundastarf í Dalabyggð og stuðla að samfellu í skóla, íþrótta- og félagsstarfi barna í sveitarfélaginu
· umsjón með vinnuskóla og félagsmiðstöð og aðstoð við ungmennaráð Dalabyggðar
· skipulag og verkefnastjórn í ýmsum málum sem til falla, t.d. forvarnamál, átaksverkefni og hátíðir
Hæfniskröfur eru
• menntun sem nýtist í starfi
• reynsla og þekking á íþrótta- og æskulýðsmálum
• góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum
• framsýni og metnaður í starfi
• almenn tölvukunnátta
Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn komi til með að búa í Dalabyggð og hann þarf að hafa hreint sakavottorð. Starfstöð verður á skrifstofu Dalabyggðar.
Umsókn skal senda til:
Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga
Heiðrún Sandra Grettisdóttir, Hofakri, 371 Búðardal
Fyrirspurnir má senda á netfangið udn@udn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar 2016 og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei